Lífið

Topp 5 - Versti írski hreimurinn fyrr og síðar

Dagur heilags Patreks er í dag og af því tilefni gerði breska blaðið Metro lista yfir þá fimm leikara sem höfðu versta írska hreiminn sem heyrst hefur á hvíta tjaldinu.

Efstur á lista er Tommy Lee Jones í hlutverki Ryans Gaerity í hasarmyndinni Blown Away. Þar lék Jones brjálaðan írskan sprengjusérfræðing sem flúði úr fangelsi og ákvað að hrella meðlimi sprengjusveitar lögreglunnar í Boston þar sem persóna Jeff Bridges var fremst í flokki.

Í öðru sæti yfir versta hreiminn lenti Skotinn Gerard Butler fyrir hlutverk sitt í dramanu PS I Love You þar sem hann lék á móti Hilary Swank. Töluvert grín var gert að Butler fyrir írska hreiminn og svo virðist sem skoskur uppruni hans hafi eitthvað ruglað hann í ríminu.

Richard Gere lék fyrrverandi meðlim IRA, Declan Mulqueen, í myndinni The Jackal á móti Bruce Willis. Írski hreimurinn vafðist ítrekað fyrir Gere, sem var hreinlega úti á þekju í hverju atriðinu á fætur öðru.

Hjartaknúsarinn Brad Pitt lék norður-írskan meðlim IRA í The Devil's Own og þótti engan veginn ná tökum á hreimnum. Hann sýndi mun betri takta í Snatch og sannaði þar að hann getur vel brugðið sér írska gírinn.

Í fimmta sætinu lenti svo Sean Connery í Disney-myndinni Darby O'Gill and the Little People sem kom út 1959. Hreimur persónunnar Michaels McBride þótti afleitur enda var Connery fljótur að hrista hann af sér sem njósnari hennar hátignar, 007, þremur árum síðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×