Lífið

Valdís með nýja mynd á teikniborðinu

Valdís Óskarsdóttir er að skrifa kvikmyndahandrit sem nefnist Þrír menn, tvær konur, eitt lík og lögga. Fréttablaðið/Stefán
Valdís Óskarsdóttir er að skrifa kvikmyndahandrit sem nefnist Þrír menn, tvær konur, eitt lík og lögga. Fréttablaðið/Stefán
Valdís Óskarsdóttir er að skrifa handrit að nýrri gamanmynd sem nefnist Þrír menn, tvær konur, eitt lík og lögga.

„Titillinn segir voðalega mikið. Þetta fjallar svolítið um þeirra samverustundir og hvernig líf þessa fólks fléttast saman," segir Valdís. Hún hefur unnið með leikurunum í Vesturporti í síðustu tveimur myndum sínum, Sveitabrúðkaupi og Kóngavegi en hefur ekki ákveðið hvort áframhald verði á því samstarfi.

Valdís, sem hefur getið sér gott orð bæði sem leikstjóri, handritshöfundur og klippari, segist ekki vita hvenær tökur á myndinni geta hafist eða hvort hún muni leikstýra. Fyrst þarf hún að ljúka við handritið, sækja um styrki og svo framvegis.

„Ástandið á Íslandi er ekki alveg það besta til að framleiða bíómyndir. Það er lítið um peninga og mikill niðurskurður. Það er best að byrja á að klára handritið og sjá svo til."

Hún getur vel hugsað sér að gera aðra mynd eins og Sveitabrúðkaup þar sem spuni leikaranna spilaði stóra rullu. „Það er ekki hægt að fá styrk frá Kvikmyndamiðstöð til að vinna mynd sem er ekki með fullskrifað handrit, því miður. Ég þarf að róa á önnur mið og reyna að finna einhverja leið til að framleiða myndir sem eru ekki alveg eftir bókinni," segir hún.

Síðasta mynd hennar, Kóngavegur, kom út fyrir rúmu ári og fékk hún góðar viðtökur, þar á meðal fjórar stjörnur hér í Fréttablaðinu. Með aðalhlutverkin fóru Gísli Örn Garðarsson og Þjóðverjinn Daniel Brühl. -fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×