Lífið

Hundrað vilja í Stundina okkar

Kveður Björgvin Franz hættir í Stundinni okkar en yfir hundrað umsóknir bárust um starf hans. Sex hafa verið valdir úr, samkvæmt Sigrúnu Stefánsdóttur, dagskrárstjóra RÚV.
Fréttablaðið/GVA
Kveður Björgvin Franz hættir í Stundinni okkar en yfir hundrað umsóknir bárust um starf hans. Sex hafa verið valdir úr, samkvæmt Sigrúnu Stefánsdóttur, dagskrárstjóra RÚV. Fréttablaðið/GVA
„Við fengum fullt af spennandi umsóknum frá spennandi fólki,“ segir Sigrún Stefánsdóttir, dagskrárstjóri RÚV.

Um hundrað umsóknir bárust Ríkissjónvarpinu vegna lausrar stöðu umsjónarmanns Stundarinnar okkar. Eins og Fréttablaðið greindi frá fyrir skemmstu er Björgvin Franz Gíslason að hætta með Stundina okkar og flytja til Ameríku og hann kvaddi svo sannarlega á toppnum; fékk Edduna og skaut Sveppa ref fyrir rass.

Sigrún segir starfið sérstaklega mikilvægt í ár því nú eru liðin 45 ár frá því Stundin okkar fór fyrst í loftið. Sem gerir þetta að elsta sjónvarpsþættinum á dagskrá RÚV fyrir utan fréttir. „Við ætlum að vanda okkur vel við valið,“ segir Sigrún en búið er að grisja umsóknirnar og sex einstaklingar eða pör hafa verið boðaðir í frekari viðtöl.

„Við erum síðan með mjög langan lista af mjög álitlegum umsækjendum sem við munum grípa í ef þessir sex ganga ekki upp.“

Það er óhætt að fullyrða að staða umsjónarmanns Stundarinnar okkar sé merkileg en meðal þeirra sem hafa gegnt henni eru Bryndís Schram, Gunnar Helgason og Felix Bergsson, Ásta Hrafnhildur og kötturinn Keli og svo Jóhann G. og Þóra Sigurðardóttir í hlutverkum Bárðar og Birtu.

„Fólk verður auðvitað almenningseign þegar það stjórnar þessum þætti.“- fgg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×