Körfubolti

Léttur sigur hjá Helga Má og félögum - tap hjá Loga

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helgi Már Magnússon.
Helgi Már Magnússon. Mynd/Anton
Helgi Már Magnússon og félagar í Uppsala Basket unnu 36 stiga sigur á ecoÖrebro á heimavelli í sænska körfuboltanum í kvöld en Logi Gunnarsson og félagar í Solna Vikings þurftu hinsvegar að sætta sig við stiga fimm tap eftir mjög slakan þriðja leikhluta.

Helgi Már var með 6 stig, 8 fráköst og 2 stolna bolta á rúmum 27 mínútum en skoraði tvo þrista í leiknum. Helgi var með 6 stig og 5 fráköst í fyrri hálfleiknum þar sem hans menn lögðu grunninn að sigrinum.

Logi Gunnarsson skoraði 19 stig í 89-94 tapi Solna Vikings á útivelli á móti Jämtland Basket. Logi hitti úr 4 af 5 þriggja stiga skotum sínum en það dugði ekki til.

Logi var rólegur til byrja með og var aðeins með þrjú stig þegar hann skoraði lokakörfu fyrri hálfleiks og kom Solna í 44-34 í hálfleik. Þriðji leikhlutinn tapaðist síðan 33-19 og eftir það var Jämtland með frumkvæðið í leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×