Körfubolti

Helena með fjóra þrista í sjöunda sigri TCU í röð

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helena Sverrisdóttir
Helena Sverrisdóttir Mynd/Heimasíða TCU
Helena Sverrisdóttir og félagar hennar í TCU-háskólaliðinu héldu sigurgöngu sinni áfram í nótt þegar liðið vann 54-51 sigur á BYU í hörkuleik. Helena var stigahæsti leikmaðúr TCU-liðsins með sextán stig.

TCU hefur unnið fimm fyrstu leiki sína í Mountain West deildinni og þetta var ennfremur 31. heimasigur liðsins í síðustu 32 leikjum í Daniel-Meyer Coliseum.

Helena skoraði níu af sextán stigum sínum í seinni hálfleik en hún hitti úr 4 af 7 þriggja stiga skotum sínum í leiknum. Helena var auk stiganna með 6 fráköst, 3 stoðsendingar og 2 stolna bolta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×