Körfubolti

TCU hóf deildakeppnina með sigri

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Helena Sverrisdóttir fagnar í leik með TCU.
Helena Sverrisdóttir fagnar í leik með TCU. Mynd/AP
Helena Sverrisdóttir og félagar í TCU unnu í nótt góðan sigur á San Diego State í fyrsta leik liðanna í Mountain West-deildinni, 49-47.

Helena var ekki langt frá þrefaldri tvennu í leiknum en hún skoraði sjö stig, tók tólf fráköst og gaf átta stoðsendingar.

Líklegt er að Helena nái þeim glæsilega áfanga í næsta leik að verða stoðsendingahæsti leikmaðurinn í sögu skólans en hana vantar aðeins þrjár stoðsendingar til að bæta gildandi met.

TCU komst á 30-10 sprett um miðbik leiksins og munaði miklu um það. Leikurinn var engu að síður spennandi. Helena komst í veg fyrir sendingu á lokasekúndum leiksins og tryggði þar með sínu liði endanlega sigurinn.

TCU hafði unnið átta af fjórtán leikjum sínum á undirbúningstímabilinu en byrjar vel í deildakeppninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×