Viðskipti innlent

Þénar minna en undirmenn og telur launin ekki samkeppnishæf

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Bankastjóri Landsbankans telur laun sín ekki samkeppnishæf en þau eru aðeins um þriðjungur af launum bankastjóra hinna bankanna. Hann segist vonast til þess að lögum verði breytt svo Kjararáð geti ekki bundið hendur stjórnar bankans.

Í árshlutauppgjöri Landsbankans sem birtist í september kemur fram að stjórn bankans hafi af því miklar áhyggjur að laun bankastjórans séu ekki samkeppnishæf.

Sérstök staða - laun ákveðin af Kjararáði

Samkvæmt lögum sem tóku gildi 2009 eru laun bankastjórans ákveðin af Kjararáði. Þetta hefur þýtt að undirmenn Steinþórs Pálssonar eru á hærri launum en hann. Og hann er á miklu lægri launum en stjórnendur Arion banka og Íslandsbanka. Sem dæmi þá er Steinþór með minna en þriðjung af launum Höskuldar Ólafssonar, bankastjóra Arion banka.

„Ég segi nú oft að ég sé sá bankamaður á íslandi sem er með með lægstu launin fyrir hverja unna stund því það að vera bankastjóri Landsbankans er ansi mikil vinna," segir Steinþór en hann var gestur okkar í nýjasta þættinum af Klinkinu.

Steinþór starfaði í bankageiranum í 15 ár, áður en hann söðlaði um og var meðal annars í átta ár hjá Actavis.

Ertu með lægri laun hjá Landsbankanum en þú varst með hjá Actavis. „Já, já. Langtum lægri laun."

Hvers vegna skiptirðu um vinnu? „Það er nú það. Þetta var áskorun."

Landsbankinn er eitt stærsta fjármálafyrirtæki á Íslandi með yfir 1.250 starfsmenn.

Er ekki hægt að taka hina hliðina á umræðunni og segja að stjórnendur hinna bankanna séu einfaldlega með allt of há laun? „Það má kannski segja það. Ég er með rétt um eina milljón á mánuði. Þar er allt talið, bíll og internettengingin sem ég er með heima hjá mér kemur til frádráttar. Ég held að það séu of lág laun," segir Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans.

Sjá má viðtalið í heild sinni við Steinþór í Klinkinu hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×