Körfubolti

Helena skoraði fimm stig

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Helena Sverrisdóttir.
Helena Sverrisdóttir.
Helena Sverrisdóttir skoraði fimm stig fyrir lið sitt, Good Angels Kosice frá Slóvakíu, þegar að liðið tapaði fyrir Wisla Can-Pack í Evrópudeild kvenna í kvöld, 72-69.

Staðan í hálfleik var 41-38, gestunum frá Póllandi í vil. Þeir skoruðu svo 22 stig í þriðja leikhluta sem fór langt með að tryggja liðinu sigur í leiknum.

Helena lék alls í þrettán mínútur og nýtti tvö af fjórum skotum sínum. Hún tók tvö fráköst, gaf eina stoðsendingu og stal boltanum einu sinni.

Good Angels er í fjórða sæti C-riðils með tólf stig eftir átta leiki. Spartak Moskva og Wisla deila efsta sætinu með fjórtán stig hvort.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×