Körfubolti

Helena og félagar unnu í Meistaradeildinni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helena Sverrisdóttir.
Helena Sverrisdóttir. Mynd/Heimasíða Good Angels Kosice
Helena Sverrisdóttir og félagar hennar í Good Angels Kosice unnu flottan 71-54 sigur á tékkneska liðinu Frisco Brno í Meistaradeild Evrópu í kvöld en Kosice lagði grunninn að sigrinum með því að vinna lokaleikhlutann 22-9.

Good Angels Kosice hefur unnið 4 af 7 leikjum í sínum riðli í Meistaradeildinni og er sem stendur í 4. sæti riðilsins.

Helena Sverrisdóttir fékk að spila í 20 mínútur í leiknum sem er meira en hún hafði spilað samanlagt í þremur Meistaradeildarleikjum þar á undan.

Helena var með 4 stig, 4 fráköst og 1 stoðsendingu og Good Angels liðið vann þær 20 mínútur sem hún spilaði með tíu stigum.

Bandaríska stelpan Danielle McCray skoraði 19 stig fyrir Kosice-liðið og Natalia Vieru var með 16 stig og 14 fráköst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×