Körfubolti

Helena og félagar unnu á Ítalíu í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helena Sverrisdóttir.
Helena Sverrisdóttir. Mynd/Heimasíða Good Angels Kosice
Helena Sverrisdóttir og félagar hennar í slóvakíska liðinu Good Angeles Kosice unnu fimm stiga útisigur á ítalska liðinu CB Taranto, 61-56, í Meistaradeild Evrópu (Euroleague) í kvöld.

Good Angeles Kosice hefur þar með unnið 3 af fyrstu 4 leikjum sínum í Euroleague á þessu tímabili og er í 2. sæti í sínum riðli.

Liðið tapaði sínum fyrsta leik en hefur síðan unnið þrjá leiki í röð og nú er aðeins pólska liðið Wisla Can-Pack fyrir ofan slóvakíska liðið í töflunni.

Helenu tókst ekki skora í kvöld á þeim tæpu níu mínútum sem hún spilaði. Hún klikkaði á eina skoti sínu en var með 1 frákast og 1 stosðendingu.

Bandaríska stelpan Danielle Mc Cray skoraði 22 stig og Lucia Kupcikova var með 15 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×