Körfubolti

Tap í fyrsta leik hjá Jóni Arnóri

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jón Arnór Stefánsson.
Jón Arnór Stefánsson. Mynd/Anton
Jón Arnór Stefánsson og félagar í CAI Zaragoza töpuðu í fyrsta leik sínum á tímabilinu þegar liðið sótti Valencia heim í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld. Valenica vann leikinn 82-66 eftir að hafa verið 44-27 yfir í hálfleik.

Zaragoza-liðið lagaði stöðuna með því að vinna lokaleikhlutann 23-11 en Valenica vann fyrstu þrjá leikhlutana með 25 stigum.

Jón Arnór Stefánsson var með fimm stig og eitt frákast á 16 mínútum en hann setti niður 2 af 5 skotum sínum utan af velli.

Jón Arnór, sem byrjaði á bekknum, spilaði aðeins í rúmar fjórar mínútur í fyrri hálfleiknum en hann fékk strax tvær villur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×