Körfubolti

Helena lét lítið fyrir sér fara í sigurleik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Helena Sverrisdóttir í leik með Good Angels.
Helena Sverrisdóttir í leik með Good Angels.
Helena Sverrisdóttir náði ekki að skora á þeim fjórtán mínútum sem hún spilaði er lið hennar, Good Angels Kosice frá Slóvakíu, vann góðan sigur á spænska liðinu Rivas Ecopolis í Evrópudeild kvenna, 81-63.

Good Angels voru með forystu allt frá upphafi leiksins en gerði svo endanlega út um leikinn með góðum fjórða leikhluta. Spánverjarnir skoruðu í honum aðeins níu stig.

Good Angels tapaði fyrsta leik sínum í C-riðli í síðustu viku en svaraði því í kvöld með góðum sigri. Helena lét þó lítið fyrir sér fara í leiknum en hún reyndi eitt þriggja stiga skot í leiknum, tók eitt frákst og gaf eina stoðsendingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×