Rúnar: Það á að ráða yfirmann knattspyrnumála hjá KSÍ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. september 2011 14:15 Rúnar Kristinsson í leik með íslenska landsliðinu. Mynd/Nordic Photos/Bongarts
Rúnar Kristinsson, þjálfari KR og leikjahæsti landsliðsmaður Íslands frá upphafi,var gestur Heimis Karlssonar í Bítinu á Bylgjunni í morgun þar sem að hann tjáði sig um íslenska karlalandsliðið í fótbolta sem vann 1-0 sigur á Kýpur í gær. Rúnar var spurður út í næsta landsliðsþjálfara en hann vill að sambandið finn fyrst mann sem skipuleggi allt landsliðsstarfið frá A til Ö. „Það þarf að gera þetta í víðara samhengi. Knattspyrnusambandið þarf að ráða mann sem yfirmann knattspyrnumála, mann sem hefur einhverja knattspyrnulega þekkingu og hugsanlega sögu af því að leikið knattspyrnu. Sá maður þarf að mynda einhverja stefnu í landsliðsmálum karla og kvenna frá yngsta landsliðinu og upp í A-landslið," segir Rúnar. „Þegar búið er að gera það þá er hægt að ráða þjálfara sem er tilbúinn að vinna eftir þeirri stefnu. Það má ekki vera þannig eins og það er núna að það sé liggur við rifildi á milli A-landsliðsþjálfara og þjálfara 21 árs landsliðsins um hvar leikmaðurinn á að spila. Þarna á að vera skýr skil og það á verður að vera ákveðin regla," segir Rúnar en hvernig landsliðsþjálfara vill hann sjá? „Ég vil ekki fá harðstjóra í þetta starf því það er leið sem er orðin mjög gömul og menn eru hættir að nota. Auðvitað þurfa menn eitthvað að byrsta sig inn á milli en það er ekki hægt að reka knattspyrnumenn áfram eins og einhver dýr. Það þarf að tala menn, gefa þeim leiðbeiningar um ákveðnar hlaupaleiðir og ákveðna taktík," segir Rúnar. Rúnar var síðan spurður sjálfur út í það hvort að hann hafi áhuga á því að taka við liðinu. „Ég væri alveg tilbúinn að vera landsliðsþjálfari en hvort að það sé rétta tímasetningin núna það er ég ekki viss um," sagði Rúnar við því.
Íslenski boltinn Mest lesið „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Handbolti Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Handbolti Fleiri fréttir Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Vestri valtaði yfir Völsung Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Aron Einar heim í Þorpið? Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Sara Björk snýr heim í Hauka „Það vill enginn í hópnum sjá hann fara“ Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Ögmundur laus allra mála hjá Val Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Þróttarar með mikilvægan sigur á Grindvíkingum Eini grasleikurinn kom í veg fyrir markamet Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Emilsþruma, þrenna, fjórtán ára með stoðsendingu og markaveislur út um allt Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald „Eins gott að ég setti ekki Óskar á bekkinn“ „Fúlt að fara með þennan skell inn í hléið“ Afturelding á toppinn eftir stórsigur á Fylki Umfjöllun og viðtöl: KR - KA 5-3 | Markaveisla á Meistaravöllum Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings „Engan bilbug á okkur að finna“ Umfjöllun: Þór - Stjarnan 1-3 | Lífsnauðsynlegur sigur Garðbæinga „Ákvað að kontra hann í samúel“ Gerði sínu gamla liði mikinn grikk Sjá meira
Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings