Varð skotmark með því að ráða Frey: „Ákveðin áhætta fyrir mig“ Aron Guðmundsson skrifar 17. september 2026 09:01 Alfreð Finnbogason, yfirmaður knattspyrnumála hjá Rosenborg, sér ekki eftir því að hafa ráðið inn Frey Alexandersson sem þjálfara liðsins þegar að Rosenborg var að ganga í gegnum afar erfiða tíma. Samsett mynd Rosenborg hefur verið að upplifa frábæra tíma undir stjórn Freys Alexanderssonar en yfirmaður knattspyrnumála hjá félaginu, Alfreð Finnbogason, tók persónulega séð mikla áhættu með því að fá hann til starfa hjá félaginu.
Undanfarna rúma hálfa árið eða svo hefur Alfreð barist um í þeytivindu fótboltans sem yfirmaður knattspyrnumála hjá norska stórliðinu Rosenborg. Félagið hefur gengið í gegnum erfiða tíma, ekki eins glæsta og Rosenborg er þekkt fyrir, og það reyndi svo til um leið á leiðtogahæfileika Alfreðs sem býr að mikilli reynslu frá sínum ferli sem atvinnu- og landsliðsmaður í fótbolta. Klippa: Alfreð tók áhættu með að ráða Frey Útlitið var ekki bjart í byrjun starfstíðar Alfreðs. Fallbarátta og erfið úrslit leiddu af sér uppsögn á þjálfara liðsins. Stjórn félagsins sagði einnig af sér en úr öskunni hefur félagið risið upp á síðkastið og það ekki síst með hjálp Íslendinganna hjá félaginu. Freyr Alexandersson var ráðinn inn sem þjálfari og er að upplifa, með sjö sigrum í fyrstu níu leikjum sínum, bestu byrjun þjálfara Rosenborg síðan árið 2010. Fallbaráttan hefur verið kvödd og er Rosenborg nú í harðri baráttu um Evrópusæti. Það besta fyrir Rosenborg Frey var óvænt sagt upp störfum sem þjálfari Brann í norsku úrvalsdeildinni og á þeim tíma var Rosenborg í þjálfaraleit. Alfreð tók áhættu með að sækja hart að því að fá samlanda sinn inn sem þjálfara og vissi að það gæti komið sér um koll ef illa myndi ganga. „Auðvitað er það einn faktor sem hefði klárlega spilað inn í ef maður hugsar bara um hvað er það versta sem getur gerst,“ segir Alfreð í samtali við Vísi. „Auðvitað koma þær hugsanir af og til og svo þarf maður bara að ákveða út frá hvaða sjónarmiði maður ætlar að nálgast þessa ákvörðun. Ætla ég að nálgast þessa ákvörðun út frá því hvað gæti gerst ef að þetta fer ekki eins og við plönum eða hvernig mun þetta líta út fyrir mig? En á endanum var ákvörðunin tekin með það fyrir augum hvað sé það besta fyrir Rosenborg.“ Alltaf beintengt við Alfreð Freyr hafi verið augljós kostur í starfið „Ekki bara hjá mér heldur öllum sem komu að þessu ráðningarferli. Okkur fannst mjög mikilvægt að fá inn þjálfara sem væri með reynslu af norsku deildinni. Það hefur sýnt sig að það hjálpar klárlega að þekkja hana, bæði hvað varðar æfingakúltúr og ákefðina í leikjum. Auðvitað var það ákveðin áhætta fyrir mig persónulega að ef þetta hefði ekki gengið upp eða muni ekki ganga upp. Þetta verður alltaf beintengt við mig bara af því við erum Íslendingar. En þegar maður skoðar stóru myndina þá var þetta einfaldlega besta ákvörðunin og það hefði verið galið hjá mér að ætla að taka eitthvað annað fram yfir þennan kost.“ Viðtalið við Alfreð Finnbogason, yfirmann knattspyrnumála hjá Rosenborg, má hlusta á í heild sinni á öllum helstu hlaðvarpsveitum. Brot úr viðtalinu má sjá í spilaranum hér ofar í fréttinni.
Norski boltinn Íslendingar erlendis Fótbolti Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Njarðvík sagði upp samningi við Smit Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Freyr að eignast markakóng eftir enn einn sigurinn Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjá meira