Boehly selur og kveður Chelsea Sindri Sverrisson skrifar 17. september 2026 07:30 Todd Boehly var formaður Chelsea í fjögur ár. Getty/Vince Mignott Bandaríkjamennirnir Todd Boehly og Mark Walter hafa selt hluta sinn í enska knattspyrnufélaginu Chelsea til fjárfestingafélagsins Clearlake Capital og lokið störfum hjá félaginu.
Boehly hættir því sem stjórnarformaður eftir að hafa gegnt því hlutverki frá árinu 2022, þegar hann fór fyrir hópnum sem keypti Chelsea. Hópurinn keypti félagið á 2,3 milljarða punda af Rússanum Roman Abramovich sem þá átti yfir höfði sér refsingu í Bretlandi vegna meintra tengsla við Vladimir Pútín. Clearlake Capital, sem leitt er af þeim Behdad Eghbali og Jose E. Feliciano, átti áður 61,5% hlut í Chelsea en öðlast nú full yfirráð hjá félaginu. Þeir Boehly, Walter og svissneski auðkýfingurinn Hansjörg Wyss áttu 12,8% hlut hver. Samkvæmt tilkynningu Chelsea verður hinn níræði Wyss þó áfram „mikilvægur hluthafi og félagi í eigendahópnum“. Brotthvarf Boehly og Walters, sem einnig hafa selt hlut sinn í vinafélaginu Strasbourg í Frakklandi, hefur legið í loftinu. Í tilkynningu Chelsea segir að „engar breytingar verði á daglegum rekstri, forystu eða stefnu félagsins,“ svo gangi það eftir ættu stuðningsmenn félagsins ekki að finna fyrir miklum breytingum. Chelsea situr í 6. sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir að hafa hafnað í 10. sæti á síðustu leiktíð.Getty Boehly, sem er meðeigandi í hafnaboltafélaginu Los Angeles Dodgers, segir það hafa verið heiður að þjóna Chelsea sem stjórnarformaður. „Ég vil þakka þeim mörgu sem hjálpuðu til við að tryggja bjarta framtíð fyrir félagið, þar á meðal ensku úrvalsdeildinni, þjálfurum og leikmönnum, hæfileikaríkri forystu og starfsfólki Chelsea og hersveitum dyggra stuðningsmanna,“ sagði Boehly og bætti við: „Ég hef metið samstarf mitt við Clearlake og allan eigendahópinn mikils, sem og sameiginlegar ákvarðanir og fjárfestingar sem við höfum gert til að styðja við árangur félagsins til skemmri og lengri tíma. Ég er fullviss um að Chelsea sé í góðri stöðu til að halda áfram að ná árangri undir forystu Clearlake.“ Besti árangur Chelsea í ensku úrvalsdeildinni með Boehly sem formann var 4. sæti tímabilið 2024-25. Liðið vann Sambandsdeild Evrópu og HM félagsliða sama tímabil. Á síðustu leiktíð endaði liðið í 10. sæti úrvalsdeildarinnar og var Xabi Alonso ráðinn knattspyrnustjóri í sumar.
Enski boltinn Chelsea FC Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Sjá meira