Körfubolti

Nowitzki verður með Þjóðverjum á EM

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Dirk Nowitzki ætlar að spila með þýska landsliðinu á Evrópumótinu í sumar en Ólympíusæti eru undir á mótinu. "Fríið er búið að vera stutt hjá mér en ég vil hjálpa þessu unga þýska liði að komast á Ólympíuleikana," sagði Nowitzki sem vann NBA-meistaratitilinn með Dallas í ár.

Evrópukeppnin fer fram frá 31. ágúst til 18. september í Litháen. Tvö efstu liðin komast beint á ÓL í London.

Þýskaland er í riðli með Frakklandi, Ítalíu, Serbíu, Lettlandi og Ísrael.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×