Körfubolti

Sundsvall Dragons komið í 1-0 forystu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jakob og Hlynur.
Jakob og Hlynur. Mynd/Valli
Sundsvall Dragons vann í kvöld sinn fyrsta leik í úrslitakeppni sænsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta er liðið vann Jämtland Basket á heimavelli, 74-62.

Hlynur Bæringsson skoraði sautján stig fyrir Sundsvall og tók níu fráköst. Jakob Sigurðarson skoraði átta stig og gaf sjö stoðsendingar.

Sundsvall varð deildarmeistari fyrr í mánuðinum en Jämtland varð í áttunda sæti deildarinnar. Þetta var fyrsti leikur liðanna í fjórðungúrslitum en þrjá sigra þarf til að komast í undanúrslitin.

Liðin mætast næst á heimavelli Jämtland á föstudagskvöldið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×