Körfubolti

Jón Arnór yfir tíu stigin sjötta leikinn í röð

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jón Arnór Stefánsson.
Jón Arnór Stefánsson. Mynd/Vilhelm
Jón Arnór Stefánsson skoraði 10 stig á 28 mínútum þegar Granada tapaði 68-85 á útivelli á móti Bilbao í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag. Þetta er sjötti leikurinn í röð sem Jón Arnór brýtur tíu stiga múrinn en hann gat þó ekki komið í veg fyrir þriðja tap Granada í röð.

Granada er á botni deildarinnar og hefur aðeins unnið 5 af 26 leikjum sínum á tímabilinu. Bilbao er í 6. sætið með 16 sigra í 27 leikjum. Næsti leikur er á móti stórliði Real Madrid sem er í 2. sætinu.

Jón Arnór var einnig með 4 stoðsendingar og 4 fráköst en hann hitti úr 3 af 9 skotum sínum þarf af 2 af 3 skotum sínum fyrir utan þriggja stiga línuna. Jón Arnór hitti úr báðum vítum sínum og hefur nú hitt úr 92 prósent af vítum sínum í vetur.

Jón Arnór er búinn að hækka meðalskor sitt upp í 11,0 stig að meðaltali í leik en hann er líka með 2 fráköst og 2 stoðsendingar að meðaltali í leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×