Körfubolti

Helena fer til Slóvakíu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Helena í leik með TCU.
Helena í leik með TCU.
Helena Sverrisdóttir körfuknattleikskona mun leika sem atvinnumaður í Slóvakíu á næstu leiktíð en hún hefur komist að samkomulagi við lið þar í landi sem heitir Dobri Anjeli eða Góðu Englarnir.

Helena hefur leikið með bandaríska háskólaliðinu TCU undanfarin fjögur ár en Dobri Anjel er í fremstu röð í Slóvakíu.

Körfuknattleikskonan sterka gerði það virkilega gott með TCU í háskólaboltanum og skráði nafn sitt rækilega í sögubækur félagsins.

Búist var við að hún færi í nýliðavalið fyrir WNBA-deildina en ekki lítur út fyrir að af því verði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×