Körfubolti

Sögulegur áfangi hjá Helenu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Helena Sverrisdóttir.
Helena Sverrisdóttir.
Helena Sverrisdóttir fór á kostum með liði TCU-háskólans í nótt þegar hún náði þrefaldri tvennu. Þetta er aðeins í þriðja sinn í sögu skólans sem leikmaður nær slíkum áfanga.

Helena skoraði 16 stig, tók 10 fráköst og gaf 11 stoðsendingar. Hún komst um leið í annað sæti yfir þá leikmenn sem hafa tekið flest fráköst í sögu skólans.

Stoðsendingarnar 11 eru fjórði besti árangur í sögu skólans.

Því miður fyrir Helenu og félaga þá tapaðist leikurinn, 74-78.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×