
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson: Pólitísk leikatriði
Málið, sem sagt var umdeilt, var áform borgarinnar um að auglýsa eftir eldri húsum og lóðum til að gera upp og fegra. Síðar kom reyndar fram að fullyrðingarnar væru ekki réttar. Aðeins hefði verið um að ræða kynningu á verkefni sem áður hafði verið kynnt annars staðar og sett í fjárhagsáætlun.
Finna eitthvað – en ekki lausnirAtriðið er hins vegar í takt við annað sem kemur frá Samfylkingunni í borginni. Fulltrúar flokksins reka pólitík sem gengur út á að finna eitthvað, bara eitthvað atriði, til að ná eins og einni eða tveimur fyrirsögnum áður en upp kemst um hversu lítilfjörlegur eða rangur málflutningurinn er. Þetta eru aðferðirnar sem hafa stundum gert borgarpólitíkina óþolandi. Yfirleitt nenna menn ekki að elta ólar við þessi endalausu auglýsingaatriði fólks sem hefur enga raunverulega gagnrýni (hvað þá lausnir) fram að færa, en með bókuninni í framkvæmda og eignaráði náði ósvífnin þó slíkum hæðum að ekki er annað hægt en að gera við það athugasemd.
Hagkvæm verkefni fyrir lítiðBorgin hyggst leita húsa til að gera upp á vegum svo kallaðs Völundarverkefnis sem hefur verið ákaflega vel heppnað atvinnusköpunar og endurmenntunarverkefni. Að vísu hefur það aðallega skapað verkefni fyrir karlmenn úr byggingariðnaði og hönnuði. Líklega eru þær stéttir ekki efstar á blaði hjá Samfylkingarfulltrúunum. Hvergi er þó atvinnuleysið meira og varla hægt að setja út á að sköpuð séu verkefni fyrir menn sem eru tilbúnir til að mennta sig og vinna, fyrir sáralítil laun, við að fegra umhverfi borgarbúa og skapa verðmæti fyrir samfélagið. Fá verkefni geta talist eins hagkvæm fyrir borgina enda liggur kostnaðurinn fyrst og fremst í launum sem ella væru greiddur sem atvinnuleysisbætur. Hins vegar þarf að kaupa hús áður en þau eru lagfærð og seld aftur. Kostnaðurinn við það er afleiðing af hræðilegri skipulagsstefnu sem mörkuð var í Reykjavík undir forystu Samfylkingarinnar sem lengi hélt fast um þann málaflokk. Undir forystu flokksins var innleitt skipulag sem á sér enga hliðstæðu í sögulegum miðbæjum vestrænna borga undanfarin 40 árin. Reyndar hafði mönnum ekki dottið annað eins í hug í borginni frá 1962 þegar síðast var kynnt sambærileg nálgun í skipulagsmálum.
Að kaupa loftið - skriðjökull við Hverfisgötu
Þegar meirihluti Sjálfstæðisflokks og Frjálslyndra keypti Laugaveg 4-6 fyrir 580 milljónir (sem reyndar er óskiljanlega hátt verð) var ekki verið að kaupa húsin. Þau gat borgin fengið gefins. Það var verið að kaupa loft. Kaupa burt svo kallaðan „byggingarrétt" sem útdeilt hafði verið samkvæmt hinu nýja skipulagi. Búið var til loftbóluskipulag sem gaf hlutabréfabólunni ekkert eftir. Í borginni átti að færa hinar uppblásnu tölur í reikningum banka og eignarhaldsfélaga í stál og gler. Smátt og sjálfbært var úti. Stór verkefni sem þurftu stöðugt að stækka til að falla ekki saman voru inni. Undir forystu Samfylkingarinnar var skipulagssjóði borgarinnar breytt í fasteignabraskara sem keypti gömul og reisuleg hús til að rífa þau og selja lóðirnar undir skýjaborgir. Svo komu bankar og eignarhaldsfélög inn af fullum krafti og þá stóð aldeilis ekki á Samfylkingarfulltrúunum, sem nú hneykslast, að bæta í byggingarmagnið. Fjárfestingafélag átti að fá að byggja húsnæði á stærð við 3 Tollstjórahús við Laugaveg og við Hverfisgötu var gert ráð fyrir heilum skriðjökli.
Skuggalegt skipulagÍbúar í Skuggahverfi voru hraktir úr íbúðum sínum og neyddir til að selja. Þeir sögðu svo sögu sína eftir að Samfylkingarfulltrúarnir höfðu tjáð sig einum of oft um það í fjölmiðlum hvað allt hefði verið unnið í góðu samráði við íbúa hverfisins.
Enn er sama fólk við sama heygarðshornið. Í nýlegu fjölmiðlaatriði oddvita Samfylkingarinnar, birtist hann, til að lýsa því yfir að rannsaka þyrfti hvers vegna hefði verið skipulagt allt of mikið íbúðarhúsnæði í úthverfum Reykjavíkur. -Maðurinn sem átti hvað mestan þátt í að skipuleggja það.
Það færi vel á því að næst þegar borgarfulltrúar Samfylkingarinnar búa sér til pólitískt leikatriði í aðdraganda kosninganna snúist það um annað en skipulagsmál.
Skoðun

Alþjóðlegir straumar í menntamálum: Valdeflum kennara
Kolbrún Þ. Pálsdóttir skrifar

Velferð og öryggi barna í skólum og í almenningssamgöngum
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Hugleiðingar um virðismat kennara
Bergur Hauksson skrifar

Hvar stendur barnið mitt í námi?
Helga Sigurrós Valgeirsdóttir skrifar

Áslaug Arna er framtíðin
Anton Berg Sævarsson,Birkir Örn Þorsteinsson,Birta Karen Tryggvadóttir,Hulda Dröfn Sveinbjörnsdóttir,Ísak Svavarsson,Lovísa Ólafsdóttir,Páll Orri Pálsson,Þorleifur Hallbjörn Ingólfsson skrifar

Minning fórnarlamba helfararinnar svívirt
Einar Ólafsson skrifar

Minna af þér og meira af öðrum
Heiða Björk Sturludóttir skrifar

Að byggja upp öfluga og flotta leikskóla til framtíðar
Ísabella Markan skrifar

Að koma skriðdreka á Snæfellsnes
Jón Ingi Hákonarson skrifar

Ræstitækni ehf.: Fríríki atvinnurekandans
Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar

Er samfélagslegt stórslys í uppsiglingu?
Davíð Bergmann skrifar

Skiptir hugarfarið máli?
Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar

Við þurfum ekki að hafa alla með okkur í liði
Davíð Már Sigurðsson skrifar

Verkfærakistan er alltaf opin
Ástþór Ólafsson skrifar

Píratar til forystu
Guðni Freyr Öfjörð skrifar

Beðið fyrir verðbólgu
Halla Gunnarsdóttir skrifar

Minni pólitík, meiri fagmennska
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir skrifar

Ný krydd í skuldasúpuna
Helgi Áss Grétarsson skrifar

Ferðasjóður ÍSÍ hefur rýrnað frá árinu 2019
Heimir Örn Árnason skrifar

Að spila með – Samfélagsmiðla- og tölvuleikjanotkun ungmenna
Berglind Sveinbjörnsdóttir,Þórhildur Halldórsdóttir skrifar

Er Inga Sæland Þjófur?
Birgir Dýrfjörð skrifar

Kona
Anna Kristjana Helgadóttir skrifar

Bókun 35, 38 og tækifæri fyrir ungt fólk í Brussel
Gunnar H. Garðarsson skrifar

Orð skulu standa
Jón Pétur Zimsen skrifar

Dúabíllinn og kraftur sköpunar
Einar Mikael Sverrisson skrifar

Enginn er betri en þú – enginn er snjallari en þú
Árni Sigurðsson skrifar

Viljum við það besta fyrir börnin okkar?
Hilmar Þór Sigurjónsson skrifar

Stéttin sem Sjálfstæðisflokkurinn kaus að yfirgefa
Böðvar Ingi Guðbjartsson skrifar