Körfubolti

Jakob með átján stig í öruggum heimasigri Sundsvall

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jakob Örn Sigurðarson.
Jakob Örn Sigurðarson. Mynd/Stefán
Sundsvall Dragons komst aftur á sigurbraut í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld með 24 stiga heimasigri á næstneðsta liði deildarinnar, 08 Stockholm. Jakob skoraði 18 stig í leiknum og var annar stigahæsti leikmaður liðsins.

Sundsvall byrjaði ekki vel líkt og í tapleiknum á móti Gothia á þriðjudagskvöldið en Jakob sá til þess að hans menn voru komnir yfir fyrir lok leikhlutans.

Leikmenn 08 Stockholm komust í 8-2 og 15-9 en Jakob skoraði níu stig í leikhlutanum og þristur frá honum í lok hans kom Sundsvall í 22-21.

Jakob og félagar tóku síðan öll völd á vellinum og Sundsvall var komið tólf stigum yfir í hálfleik, 50-38. Jakob skoraði 15 stig í fyrir hálfleiknum.

Sigur Sundsvall var síðan aldrei í hættu í seinni hálfleiknum og liðið vann að lokum 24 stiga sigur, 92-68.

Jakob var með 18 stig, 3 fráköst og 3 stoðsendingar í kvöld en hann hitti úr 6 af 12 skotum sínum þar af 5 af 10 skotum fyrir utan þriggja stiga línuna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×