Troðslan sem kostaði Andrew Bogut úrslitakeppnina - myndband Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. apríl 2010 08:00 Andrew Bogut sést hér lenda ofan á vinstri hendinni sinni. Mynd/AP
Andrew Bogut, ástralski miðherjinn hjá Milwaukee Bucks í NBA-deildinni í körfubolta, verður líklega ekkert meira með liði sínu á tímabilinu eftir að hann meiddist illa í leik á móti Phoenix Suns í fyrrinótt. Bogut lenti illa á hendinni eftir að hafa skorað úr hraðaupphlaups-troðslu í öðrum leikhluta. Andrew Bogut skall í gólfið eftir að hann missti takið á hringnum með þeim afleiðingum að hann handleggsbrotnaði, fór úr olnbogalið og tognaði á úlnlið. Amare Stoudemire, leikmaður Phoenix Suns, fékk dæma á sig óíþróttamannslega villu þótt að atvikið hafi verið meira slys en eitthvað fólskubrot hjá honum. Það er hægt að sjá atvikið hér en það er rétt að vara við viðkvæmar sálir enda er atvikið ekki auðvelt á að horfa og strax ljóst að Bogut hafi meiðst mjög illa. Andrew Bogut hefur verið óheppinn með meiðsli síðan að hann var valinn fyrstur í nýliðavalinu 2005. Hann hefur átt mjög gott tímabil með Milwaukee Bucks og er með 15,9 stig og 10,2 fráköst að meðaltali í leik. Milwaukee Bucks liðið hefur staðið sig mjög vel í NBA-deildinni í vetur en þetta verður núna afar erfið úrslitakeppnin hjá liðinu víst að það þarf að spila án miðherja síns.
NBA Mest lesið Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Íslenski boltinn Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Íslenski boltinn Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Enski boltinn Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Körfubolti Ótrúleg bæting í Bakgarðshlaupinu: „Allt hægt ef viljinn er fyrir hendi“ Sport Hafa ekki heyrt frá Hearts: „Kom mér jafn mikið á óvart og þér“ Íslenski boltinn Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Þarf vernd lögreglu vegna reiði Rómverja Fótbolti Nasistaborði í Magdeburg til rannsóknar Fótbolti Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Fótbolti Fleiri fréttir Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Sjá meira