Körfubolti

Haukur og félagar á góðu skriði - myndband

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Haukur Helgi Pálsson.
Haukur Helgi Pálsson.
Haukur Helgi Pálsson og félagar í Maryland hafa unnið þrjá fyrstu leiki sína á tímabilinu en Haukur er að stíga sín fyrstu spor með þessum virta körfuboltaskóla. Haukur spilaði í 16 mínútur í síðasta leik þegar Maryland vann öruggan 89-59 sigur á Maine-skólanum.

Haukur sýndi fjölhæfni sína í tölfræðinni á þessum sextán mínútum því hann var með 8 stig, 4 fráköst, 1 stoðsendingu, 1 stolinn bolta og 1 varið skot. Haukur hitti úr öllum sex vítum sínum í leiknum.

Það má finna myndband frá leiknum með því að smella hér en undir lok þess má sjá Hauk, sem spilar í treyju númer 13, bæði stela boltanum og gefa glæsilega stoðsendingu á félaga sinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×