Körfubolti

Jón Arnór og félagar komust ekki í úrslitakeppnina

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jón Arnór Stefánsson.
Jón Arnór Stefánsson. Mynd/Valli

Jón Arnór Stefánsson og félagar í CB Granada komust ekki í úrslitakeppni spænsku úrvalsdeildarinnar en lokaumferð deildarkeppninnar fór fram um helgina.

Granada varð í tíunda sæti deildarinnar en liðið vann alls fimmtán af 34 leikjum sínum í vetur. Liðið vann góðan útisigur á Murcia í lokaumferðinni, 76-70.

Jón Arnór skoraði níu stig og tók fimm fráköst á þeim sautján mínútum sem hann lék í leiknum.

Barcelona var fyrir löngu búið að tryggja sér deildarmeistaratitilinn en Caja Laboral og Real Madrid urðu í öðru og þriðja sæti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×