Körfubolti

Helgi í sigurliði en Jakob stigahæstur í tapleik

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Helgi Már Magnússon.
Helgi Már Magnússon.

KR-ingarnir Jakob Örn Sigurðarson og Helgi Már Magnússon voru báðir í eldlínunni með félögum sínum í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld.

Helgi Már og félagar í Solna lögðu lið Jamtlands Basket, 85-68, þar sem Helgi Már skoraði 7 stig og reif niður 5 fráköst.

Lið Jakobs Arnar, Sundsvall, mætti Plannja í sannkölluðum toppslag. Jakob og félagar urðu að lúta í parket þar sem Plannja vann leikinn, 80-68.

Það er þó ekki við Jakob að sakast sem var stigahæstur í liði Sundsvall með 17 stig.

Sundsvall í þriðja sæti deildarinnar en Solna því fjórða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×