Körfubolti

Helena nálægt fjórfaldri tvennu í tapi á móti San Diego

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helena Sverrisdóttir.
Helena Sverrisdóttir. Mynd/AP
Helena Sverrisdóttir og félagar í TCU áttu aldrei möguleika á móti sterku liði San Diego State í bandaríska háskólaboltanum í nótt. TCU tapaði leiknum 61-84 eftir að hafa verið komið 18 stigum undir í hálfleik, 31-49.

Helena var næststigahæst, frákastahæst og stoðsendingahæst í liði TCU og var í raun nálægt fjórfaldri tvennu í leiknum. Þetta var fyrsta tap TCU í fimm leikjum og aðeins það sjötta í 25 leikjum á tímabilinu.

Helena var með 16 stig, 9 stoðsendingar, 8 fráköst og 9 tapaða bolta á þeim 34 mínútunum sem hún spilaði. Helena hitti úr 4 af 10 skotum þar af 2 af 3 fyrir utan þriggja stiga línuna en fyrri þristurinn var hennar hundraðasti fyrir TCU.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×