Körfubolti

Helena ekki lengur stigahæst hjá TCU-liðinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helena Sverrisdóttir með þjálfara sínum Jeff Mittie.
Helena Sverrisdóttir með þjálfara sínum Jeff Mittie. Mynd/Heimasíða TCU

Helena Sverrisdóttir og félagar í TCU unnu mjög öruggan 37 stiga sigur, 72-35, á Air Force skólanum í fyrsta leik sínum í Mountain West deildarkeppninni en þetta var sjötti sigurleikur liðsins í röð.

Helena var róleg í stigaskoruninni og skoraði bara 5 stig í leiknum. Hún var þó með 8 fráköst og 6 stoðsendingar á þeim 25 mínútum sem hún lék og var efst í þeim tölfræðiþáttum á vellinum.

Með því að skora aðeins fimm stig í leiknum þá missti Helena félaga sinn í liðinu, Emily Carter, upp fyrir sig á listanum yfir stigahæstu leikmenn TCU-liðsins í vetur.

Emily Carter skoraði 18 stig í sigrinum í nótt og hefur þar með skorað 13,9 stig að meðaltali í leik en meðalskor Helenu datt niður í 13,5 stig eftir leikinn í nótt. Þess má geta að Emily Carter skoraði þrjár körfur eftir stoðsendingu frá Helenu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×