Lífið

Stjörnurnar deila fatasmekk

Paris Hilton Hótelerfinginn klæddist þessum Louis Vuitton kjól þegar hún sótti Victoria‘s Secret tískusýninguna hinn 10. nóvember síðastliðinn.
Paris Hilton Hótelerfinginn klæddist þessum Louis Vuitton kjól þegar hún sótti Victoria‘s Secret tískusýninguna hinn 10. nóvember síðastliðinn.
Þrátt fyrir dýran fatasmekk eiga stjörnurnar það til að kolfalla fyrir sömu flíkinni líkt og sjá má á meðfylgjandi myndum. Það getur verið skemmtilegt að sjá hvernig persónulegur stíll stjarnanna skín þó í gegn, til dæmis með notkun fylgihluta.

Zoe Saldana Avatar-leikkonan klæddist eins Louis Vuitton kjól og Hilton við góðgerðarsamkomu í febrúar á þessu ári.



Jennifer Hudson Söngkonan og Idol-stjarnan klæddist kjólnum frá Victoriu Beckham á Grammy-tónlistarhátíðinni í janúar á þessu ári.

Blake Lively Gossip Girl stjarnan er óhrædd við að sýna línurnar og kaus að klæðast þessum svarta kjól úr fatalínu Victoriu Beckham þegar hún sótti góðgerðarsamkomu í október í fyrra.

Daisy Lowe Breska fyrirsætan valdi að klæðast þessum gula kjól frá Dolce & Gabbana við afhendingu CFDA-verðlaunanna í nóvember. Hún klæddist svartri gollu og svörtum sokkabuxum við kjólinn.

Ashley Greene Twilight-leikkonan hreifst einnig af D&G-kjólnum en ákvað að leyfa honum að njóta sín án allra fylgihluta.

Mary J. Blige R'n'B söngkonan klæddist þessum gyllta síðkjól frá hönnuðinum Catherine Malandrino við góðgerðarsamkomu.

Drew Barrymore Leikkonan deilir smekk með Mary J. Blige því hún klæddist sama gyllta kjól við frumsýningu myndarinnar Going the Distance. Barry­more bætti þó um betur og hafði belti um sig miðja.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×