Þrír leikir fóru fram í Iceland Express-deild karla í kvöld. Stórleikur kvöldsins var viðureign Stjörnunnar og Snæfells í Garðabæ.
Þar gerði Snæfell sér lítið fyrir og vann góðan sigur í hörkuleik.
Hamarsmenn fóru illa með ÍR-inga í Hveragerði og Keflavík valtaði yfir Fjölni í Grafarvogi.
Úrslit kvöldsins:
Stjarnan-Snæfell 87-93
Stig Stjörnunnar: Justin Shouse 22, Jovan Zdravevski 20, Kjartan Atli Kjartansson 13, Fannar Helgason 12, Magnús Helgason 11, Guðjón Lárusson 9.
Stig Snæfells: Sean Burton 22, Emil Jóhannsson 21, Hlynur Bæringsson 19, Sigurður Þorvaldsson 18, Jón Ólafur Jónsson 5, Sveinn Davíðsson 5, Páll Helgason 3.
Hamar-ÍR 102-81
Stig Hamars: Marvin Valdimarsson 29, Oddur Ólafsson 26, Andre Dabney 23, Svavar Pálsson 13, Ragnar Nathanaelsson 10, Viðar Hafsteinsson 1.
Stig ÍR: Hreggviður Magnússon 19, Eiríkur Önundarson 17, Michael Jefferson 13, Ólafur Þórisson 10, Kristinn Jónasson 8, Nemanja Sovic 7, Steinar Arason 5, Elvar Guðmundsson 2.
Fjölnir-Keflavík 84-103
Stig Fjölnis: Chris Smith 27, Tómas Tómasson 19, Ægir Steinarsson 13, Sindri Kárason 7, Magni Hafsteinsson 7, Sverrir Karlsson 6, Arnþór Guðmundsson 3, Jón Sverrisson 2.
Stig Keflavíkur: Gunnar Einarsson 25, Draelon Burns 17, Þröstur Jóhannsson 17, Hörður Axel Vilhjálmsson 17, Sigurður Þorsteinsson 8, Jón Nordal Hafsteinsson 8, Elentínus Margeirsson 5, Sverrir Sverrisson 4, Gunnar Stefánsson 2.