Körfubolti

Helgi Már og félagar í undanúrslit

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Helgi Már er að standa sig vel í Svíþjóð.
Helgi Már er að standa sig vel í Svíþjóð.

Solna Vikings, lið Helga Más Magnússonar, tryggði sér í kvöld sæti í undanúrslitum sænsku úrvalsdeildarinnar í körfuknattleik.

Solna lagði þá Södetalje Kings á útivelli, 61-78, og rimmu liðanna, 3-1. Helgi Már skoraði 9 stig fyrir Solna í leiknum.

Helgi og félagar mæta Norrköping í undanúrslitunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×