Körfubolti

Enn tapaði TCU

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Helena Sverrisdóttir.
Helena Sverrisdóttir. Mynd/AP
Helena Sverrisdóttir skoraði tíu stig fyrir TCU sem tapaði fyrir Virginia á æfingamóti á bandarísku Jómfrúaeyjunum í gær.

TCU tapaði því öllum leikjum sínum á Paradise Jam-mótinu sem haldið var um helgina. Leikurinn í gær var spennandi en Virginia hafði að lokum betur, 59-55. Liðin skiptust á að vera með forystu sextán sinnum í leiknum og tíu sinnum var staðan jöfn.

Helena spilaði sem fyrr mikið fyrir TCU, alls 33 mínútur í nótt. Hún tók níu fráköst, stal þremur boltum og gaf tvær stoðsendingar. Helena tapaði þó boltanum fjórum sinnum og nýtti aðeins eitt skot af níu utan af velli. Alls nýtti hún sjö af þrettán vítaköstum.

TCU hefur nú unnið þrjá en tapað þremur á tímabilinu til þessa í bandaríska háskólaboltanum. Deildakeppnin sjálf er þó ekki hafin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×