Körfubolti

María Ben og UTPA minntu á sig í nótt

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
María Ben Erlingsdóttir átti mjög góðan leik í nótt.
María Ben Erlingsdóttir átti mjög góðan leik í nótt. Mynd/Heimasíða UTPA

María Ben Erlingsdóttir átti mjög góðan leik í glæsilegum 84-76 sigri UTPA á Texas A&M-Corpus Christi í bandaríska háskólakörfuboltanum.

María Ben var stigahæst í liði UTPA með 21 stig en hún hitti úr 7 af 12 skotum sínum þar af 3 af 4 skotum fyrir utan þriggja stiga línuna.

María Ben setti persónulegt stigamet í þessum leik en hún hefur skorað 8,4 stig að meðaltali í leik eftir þessa flottu frammistöðu.

UTPA hefur nú unnið tvo fyrstu leiki sína á nýju ári en María Ben var með 5 stig í 75-37 sigri á Letourneau á dögunum.

Þetta er mikil bæting hjá UTPA-liðinu sem vann aðeins 2 af 14 leikjum sínum fyrir áramót og mátti þola það að tapa 8 fyrstu leikjum tímabilsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×