Körfubolti

Helena var í kvöld valin besti leikmaður vikunnar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helena Sverrisdóttir fór á kostum með TCU.
Helena Sverrisdóttir fór á kostum með TCU. Mynd/AP
Helena Sverrisdóttir fór á kostum með TCU í bandaríska háskólakörfuboltanum í síðustu viku og var líka í kvöld kosin leikmaður vikunnar í Mountain West deildinni. Helena var með 21,5 stig, 8,5 fráköst og 6,5 stoðsendingar að meðaltali í tveimur sigurleikjum TCU á Houston og Texas A&M-Corpus Christi.

Helena hitti úr 15 af 25 skotum sínum í þessum tveimur leikjum (60 prósent skotnýting), var einu stigi frá persónulegu stigameti í fyrri leiknum (26 stig) og varð síðan aðeins annar leikmaður kvennaliðs TCU frá upphafi til að ná þrefaldri tvennu í þeim síðari. Helena var með 17 stig, 11 fráköst og 11 stoðsendingar á móti Texas A&M-Corpus Christi.

Þetta er í annað skiptið í vetur sem Helena er kosin besti leikmaður vikunnar í Mountain West deildinni en hún fékk þessi viðurkenningu einnig 14. desember síðastliðinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×