Körfubolti

Jakob stigahæstur í tapleik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jakob Sigurðarson.
Jakob Sigurðarson. Mynd/Daníel

Jakob Sigurðarson skoraði 27 stig fyrir Sundsvall sem tapaði fyrir Norrköping á útivelli í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld, 101-81.

Hlynur Bæringsson var í leikmannahópi Sundsvall í kvöld en spilaði ekki þar sem hann er að jafna sig eftir veikindi.

Jakob spilaði í 34 mínútur í kvöld og nýtti til að mynda allar fimm þriggja stiga tilraunirnar sínar í kvöld. Hann gaf þrjár stoðsendingar og tók tvö fráköst.

Einn annar leikur fór fram í deildinni í kvöld en í honum vann Södertälje sex stiga sigur á Örebro, 85-79. Södertälje er á toppi deildarinnar með fullt hús stiga eftir sex umferðir.

Norrköping kemur næst með átta stig en Sundsvall er í fjórða sætinu með sex.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×