Körfubolti

Jón Arnór stigalaus í fyrsta leik tímabilsins

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jón Arnór Stefánsson.
Jón Arnór Stefánsson. Mynd/Valli
Jón Arnór Stefánsson komst ekki á blað í fyrsta leik Granada í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í gær. Granada tapaði þá 104-81 fyrir hans gamla liði Valencia.

Jón Arnór lék í tæpar 22 mínútur í leiknum og klikkaði á öllum þremur skotum sínum. Hann náði heldur ekki að taka frákast, gefa stosðendingu eða að stela boltanum en fiskaði tvær villur og tapaði einum bolta.

Coby Joseph Karl, sonur NBA-þjálfarans George Karl og fyrrum leikmaður í NBA, lék sinn fyrsta deildarleik emð Granada í leiknum en skoraði hann 10 stig í þessum leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×