Körfubolti

Logi og Helgi Már töpuðu báðir með liðum sínum í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helgi Már Magnússon.
Helgi Már Magnússon.
Lið þeirra Loga Gunnarssonar (Solna Vikings) og Helga Más Magnússonar (Uppsala Basket) töpuðu bæði leikjum sínum í kvöld í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta en liðin voru að spila á útivelli.

Helgi Már skoraði 10 stig og tók 7 fráköst í 91-83 tapi Uppsala Basket á móti Södertälje Kings. Helgi lék í tæpar 29 mínútur í leiknum og hitti úr 4 af 10 skotum sínum. Uppsala tapaði fyrsta leikhlutanum 25-4 og það dugði liðinu ekki að vinna þrjá síðustu leikhlutana.

Logi Gunnarsson skoraði 8 stig þegar Solna Vikings tapaði 80-69 á útivelli á móti Borås Basket. Logi hitti aðeins úr 2 af 10 skotum sínum í leiknum en hann lék í 27 mínútur.

Solna Vikings byrjaði leikinn ekki vel og var 17 stigum undir í hálfeik, 49-32. Logi skoraði ekki körfu í fyrri hálfleiknum en setti þá niður 2 af 4 vítum sínum.

Uppsala er í 5. sæti með 4 sigra og 4 töp en Solna Vikings er í næsta sæti fyrir neðan með 3 sigra og 4 töp.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×