Enn skortir eldsneyti í Frakklandi 19. október 2010 00:30 Óeirðir í Frakklandi Til átaka kom víða um land í gær. Fréttablaðið/AP
Starfsmenn olíuhreinsistöðva í Frakklandi virtu að vettugi beiðni stjórnvalda um að þeir sneru aftur til vinnu. Eldsneytisskortur verður því viðvarandi í landinu enn um hríð. Starfsmennirnir efndu til mótmæla víða um land gegn hækkun eftirlaunaaldurs. Hópar ungmenna tóku þátt í mótmælunum og bifreiðastjórar bættust einnig í hópinn. Franska þjóðin er afar ósátt við ákvörðun stjórnvalda um að hækka lágmarks eftirlaunaaldur úr 60 árum í 62 ár, en hámarksaldur á jafnframt að hækka úr 65 árum í 67 ár. Nicolas Sarkozy forseti mælir fyrir daufum eyrum þótt hann bendi á að eftirlaunaaldur í Frakklandi verði eftir sem áður sá lægsti sem þekkist í Evrópu. Hann nær heldur ekki eyrum þjóðarinnar þótt hann bendi á að Frakkar lifi nú mun lengur en áður og að eftirlaunasjóðir séu óðum að rýrna. Verkföll olíuvinnslustarfsmanna hafa haft gríðarleg áhrif í Frakklandi. Ökumenn hafa hamstrað eldsneyti í stórum stíl, en bensínstöðvar eru að tæmast hver af annarri.- gb
Fréttir Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Fleiri fréttir Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Sjá meira