Handbolti

Danir í úrslit Heimsbikarsins

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Mikkel Hansen og félagar voru sterkir í dag.
Mikkel Hansen og félagar voru sterkir í dag.

Danir munu spila í úrslitum Heimsbikarsins í handbolta eftir sigur á Norðmönnum, 36-31, í Halmstad í dag. Staðan í hálfleik var 15-14 fyrir Dani.

Norðmenn stóðu sig vel í leiknum miðað við hversu marga sterka leikmenn vantaði í liðið. Að sama skapi eru Danir mættir til leiks með gríðarlega sterkt lið.

Nú klukkan 19.30 hefst síðari leikur dagsins í mótinu er Ísland mætir heimamönnum.

Liðið sem vinnur þann leik mætir Dönum á morgun í úrslitaleik en tapliðið mætir Norðmönnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×