Körfubolti

Helena kvaddi gamla árið með flottum leik

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helena Sverrisdóttir skoraði 26 stig í sigri TCU.
Helena Sverrisdóttir skoraði 26 stig í sigri TCU. Mynd/AP

Helena Sverrisdóttir fór fyrir TCU-liðinu í 66-61 útisigri á Houston í bandaríska háskólaboltanum á gamlárskvöld. Helena skoraði 26 stig og hitti úr 10 af 17 skotum sínum í leiknum. Hún var stigahæsti leikmaður vallarsins.

TCU-liðið vann þarna sinn fjórða leik í röð og hefur alls unnuð 9 af 12 leikjum sínum á tímabilinu. Þetta var ennfremur sjötti sigur liðsins í sex leikjum á móti skólum úr Texas-ríki það er sama ríki og TCU er frá.

Helena var aðeins einu stigi frá því að jafna persónlega stigametið sitt en hún skoraði 27 stig á móti Utah 4. febrúar 2009.

Auk þess að skora 26 stig á 36 mínútum og hitta úr 3 af 5 þriggja stiga skotum sínum þá var Helena með 6 fráköst, 2 stoðsendingar og 1 varið skot.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×