Körfubolti

Bandaríkjamenn byrja vel á HM

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Durant var sterkur í dag.
Durant var sterkur í dag.

Bandaríkjamenn fara vel af stað á heimsmeistaramótinu í körfubolta. Þeir lögðu Króatíu örugglega í gær og í dag rúlluðu Bandaríkjamenn Slóveníu upp, 99-77.

Kevin Durant var stigahæstur í bandaríska liðinu með 22 stig og Rudy Gay kom næstur með 16.

Bandaríska "B-liðið", eins og það er kallað, hefur litið vel út í fyrstu leikjunum og liðið er líklegt til afreka þó svo flestar stjörnur NBA-deildarinnar hafi ekki nennt að taka þátt í mótinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×