Körfubolti

Jón Arnór með fimm stig í tapi á móti Barcelona

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jón Arnór Stefánsson.
Jón Arnór Stefánsson. Mynd/Stefán
Jón Arnór Stefánsson og félagar í CB Granada töpuðu með sjö stigum, 72-79, á móti toppliði Regal Barcelona í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag.

Granada stóð vel í Barcelona-liðinu í þessum leik sem fram fór í Barcelona og var Granada meðal annars eini stigi yfir, 54-55, fyrir lokaleikhlutann.

Jón Arnór var með 5 stig, 3 fráköst og 3 stoðsendingar á 22 mínútum í leiknum en hann hitti úr 2 af 6 skotum sínum.

CB Granada er í 14. sæti deildarinnar eftir 25 umferðir og á enn möguleika á sæti í úrslitakeppninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×