Körfubolti

Magnús Þór með sextán stig í útisigri Aabyhøj

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Magnús Þór Gunnarsson.
Magnús Þór Gunnarsson. Mynd/Anton
Magnús Þór Gunnarsson skoraði 16 stig þegar Aabyhøj vann 79-65 sigur á Axel Kárasyni og félögum í Værløse. Værløse var fimm stigum yfir í hálfleik, 37-32, en Aabyhøj sýndi allt annan og betri leik í þeim síðari.

Magnús Þór var næststigahæsti leikmaður Aabyhøj en hann var auk 16 stiga með 4 stoðsendingar og 2 fráköst. Magnús hitti úr 4 af 5 tveggja stiga skotum en aðeins 2 af 9 þriggja stiga skotum.

Axel Kárason var með 9 stig og 5 fráköst á 20 mínútu fyrir Værløse-liðið sem hefur tapað öllum sjö leikjum sínum á tímabilinu.

Aabyhøj hefur unnið 5 af fyrstu 8 leikjum liðsisn og liðið er sem stendur í fjórða sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×