Handbolti

HK ræður þjálfara á handboltalið sín

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Gunnar Magnússon hverfur nú á braut frá HK eftir frábært starf.
Gunnar Magnússon hverfur nú á braut frá HK eftir frábært starf.

HK hefur gengið frá ráðningum á handboltaþjálfurum fyrir meistaraflokk karla og kvenna fyrir næsta tímabil.

Erlingur Richardson og Kristinn Guðmundsson munu þjálfa karlalið HK í sameiningu en þeir taka við starfinu af Gunnari Magnússyni sem hefur tekið við liði í Noregi.

Í stað tvímenningana hefur HK ráðið Hilmar Guðlaugsson sem þjálfara kvennaliðsins. Hilmar hefur þjálfað hjá HK um árabil og er meðal annars yfirþjálfari yngri flokka félagsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×