NBA í nótt: Bosh setti stigamet er Toronto vann San Antonio Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 4. janúar 2010 09:00 Chris Bosh fagnar sigri í leiknum í nótt. Mynd/AP
Chris Bosh varð í nótt stigahæsti leikmaður Toronto Raptors í sögu félagsins er hann skoraði 22 stig í sigri liðsins á San Antonio í NBA-deildinni í nótt, 91-86. Bosh var einnig með fimmtán fráköst í leiknum en hann setti metið með látlausri körfu í þriðja leikhluta. Gamla metið átti Vince Carter en Bosh hefur nú skorað alls 9428 stig á ferlinum með Toronto. Jarret Jack skoraði sextán stig í leiknum og Andrea Bargnani fimmtán. Hjá San Antonio var Tony Parker stigahæstur með 23 stig en Tim Duncan var með 21 stig og tólf fráköst. San Antonio náði að minnka muninn í tvö stig þegar tólf sekúndur voru eftir af leiknum en nær komst liðið ekki. Hedo Turkoglu lék ekki með Toronto þar sem hann lá heima með flensu. Charlotte vann óvæntan útisigur á Cleveland, 91-88. Ronald Murray setti niður þrist þegar 56 sekúndur voru til leiksloka og dugði það til að tryggja Charlotte sigur í leiknum. LeBron James var með 29 stig fyrir Cleveland auk þess sem hann tók sjö fráköst og gaf sex stoðsendingar. New York vann Indiana, 132-89. Wilson Chandler var með 23 stig fyrir New York, David Lee 22 stig og sextán fráköst. Philadelphia vann Denver, 108-105. Allen Iverson skoraði sautján stig fyrir Philadelphia og Elton Brand sextán. LA Lakers vann Dallas, 131-96. Jordan Farmar var stigahæsti leikmaður Lakers með 24 stig en alls skoruðu sjö leikmenn liðsins að minnsta kosti tíu stig í leiknum.
NBA Mest lesið Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Íslenski boltinn Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Íslenski boltinn Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Enski boltinn Ótrúleg bæting í Bakgarðshlaupinu: „Allt hægt ef viljinn er fyrir hendi“ Sport Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Körfubolti Hafa ekki heyrt frá Hearts: „Kom mér jafn mikið á óvart og þér“ Íslenski boltinn Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Þarf vernd lögreglu vegna reiði Rómverja Fótbolti Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Fótbolti Nasistaborði í Magdeburg til rannsóknar Fótbolti Fleiri fréttir Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Sjá meira