Lífið

Gott að kyssa Ewan

Kyssti MCGregor Jim Carrey segir mótleikara sinn, Ewan McGregor, hafa kysst afburðavel.nordicphotos/getty
Kyssti MCGregor Jim Carrey segir mótleikara sinn, Ewan McGregor, hafa kysst afburðavel.nordicphotos/getty

Leikararnir Jim Carrey og Ewan McGregor leika á móti hvor öðrum í kvikmyndinni I Love You William Morris, en þar leika þeir tvo menn sem hittast í fangelsi og fella hugi saman.

Inntur eftir því hvernig það hafi verið að kyssa annan karlmann segir Carrey það hafa verið draumi líkast.

„Ég meina, lítið á manninn, hann er myndarlegur. Ég viðurkenni það fúslega að hann er góður að kyssa. En ég þurfti að gleyma því um stund að ég væri að kyssa annan karlmann og ímynda mér að ég væri að kyssa manneskju sem ég elskaði."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×