Körfubolti

27 leikja sigurganga TCU á heimavelli á enda

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Helena Sverrisdóttir.
Helena Sverrisdóttir. Mynd/AP

Helena Sverrisdóttir skoraði fjórtán stig er lið hennar í bandaríska háskólaboltanum, TCU, tapaði fyrir Georgia á heimavelli, 60-57.

Þetta var fyrsta tap TCU á heimavelli í síðustu 28 leikjum liðsins en Georgia er talið þriðja sterkasta háskólalið Bandaríkjanna. Sigurkarfa leiksins var skoruð þegar þrjár sekúndur voru til leiksloka.

Helena lék í 40 mínútur í leiknum og nýtti alls þrjú af tíu skotum sínum utan af velli en öll sex vítaköstin sín. Hún tók fjögur fráköst, gaf tvær stoðsendingar og stal boltanum tvívegis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×