Lífið

Ræddu skilnað yfir mat

niðurbrotin Leikkonan Eva Longoria snæddi hádegisverð með eiginmanni sínum og ræddi ýmis atriði er varða skilnað þeirra.
nordicphotos/getty
niðurbrotin Leikkonan Eva Longoria snæddi hádegisverð með eiginmanni sínum og ræddi ýmis atriði er varða skilnað þeirra. nordicphotos/getty

Eva Longoria og Tony Parker snæddu saman hádegismat á hótelveitingastað í Los Angeles í vikunni. Samkvæmt vefritinu UsMagazine.com er þó ekki von á því að parið hætti við skilnað sinn og taki aftur saman.

„Þau hittust í hádegismat til þess eins að ganga frá ýmsum smáatriðum varðandi skilnaðinn. Þeim semur enn ágætlega þannig að samband þeirra er enn á vinalegu nótunum," var haft eftir innanbúðarmanni.

Longoria sótti um skilnað eftir að tímaritið Us Weekly flutti fréttir af framhjáhaldi Parkers með eiginkonu liðsfélaga síns. „Þau tala reglulega saman, en Eva er miður sín og hefur ákveðið að einbeita sér að vinnu sinni núna," sagði heimildarmaður um samband þeirra hjóna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×