Skoðun

Sjálfstæðisflokkur geri upp

Svavar Gestsson skrifar
Ingvi Hrafn Jónsson rekur skemmtilega sjónvarpsstöð; í þeim skilningi að þar er sitt hvað fyndið. Eitt af því eru samansúrraðir blótpistlar um allt milli himins og jarðar nema Sjálfstæðisflokkinn; hverju guð forði. Stundum hefur hann í kringum sig menn sem hneigja sig og brosa við honum í annars fátæklegri upptökunni. Undirritaður viðurkennir að hann horfir næstum aldrei á þessa þætti; tekur annað fram yfir á sólardögunum við Breiðafjörð um þessar mundir.

Undirritaður sá hins vegar í þátt sem Ingvi stjórnaði á dögunum þar sem þrír svartklæddir menn sátu og dáðust að honum. Í þættinum veittist Ingvi harkalega að ríkisstjórninni, einkum vinstri grænum, og tókst meira að segja í leiðinni að ávarpa vesaling minn. Átta ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa verið í Alþýðubandalaginu! Úff. Ég hef reyndar lengi haldið því fram að Alþýðubandalagið hafi verið besti flokkur síðustu aldar og staðfestist það með þessu mannvali á ráðherrastólum eins og kunnugt er. En tilefni þessara skrifa er ekki þetta heldur hitt að aftur og aftur kölluðu þeir sem komu fram í þættinum sig frjálshyggjumenn. Ég hélt satt að segja að það væri skammaryrði nú til dags. Og það er reyndar tilefni þessa pistils: Er frjálshyggja ekki skammaryrði á Íslandi? Er í lagi að styðja frjálshyggjuna sem lagði Ísland í rúst fyrir aðeins örfáum misserum? Eins þarf Sjálfstæðisflokkurinn að gera upp við frjálshyggjuna.

Í nefndum hrafnaþætti voru tveir alþingismenn; þeir mótmæltu því ekki að Sjálfstæðisflokkurinn byggði enn á frjálshyggjunni. Það leiðir hugann að nauðsyn þess að flokkurinn geri upp við frjálshyggjuna. Það er háskalegt að leiða Sjálfstæðisflokkinn aftur til valda ef frjálshyggjan er enn þá trúarsetning þar á bæ. Er það svo? Enn er það svo að Sjálfstæðisflokkurinn er stærsti flokkur landsins í mörgum skoðanakönnunum. Fyrir skömmu birtist enn ein könnunin þar sem flokkurinn hefur lykilstöðu. Samkvæmt henni gæti hann myndað ríkisstjórn með tveimur flokkum án stuðnings þess þriðja. Mikill fjöldi traustra og heiðarlegra einstaklinga er meðal flokksmanna í Sjálfstæðisflokknum og jafnvel í forystu. Þetta fólk vill ekki vera frjálshyggjufólk. Það telur að frjálshyggjan hafi leitt hræðilegan ófarnað yfir þjóðina. Það veit sem er að það var hugmyndafræði ofurfrelsisins sem kom Íslandi á hnén.

Þökk sé Ingva Hrafni Jónssyni fyrir að vekja athygli á þessi alvarlega vandamáli. Kannski að hann stýri uppgjörinu?




Skoðun

Sjá meira


×