Handbolti

Sigurbergur: Ánægður með okkur

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Sigurbergur Sveinsson í leiknum í kvöld.
Sigurbergur Sveinsson í leiknum í kvöld. Mynd/Daníel
Sigurbergur Sveinsson segir að það hafi verið erfitt að þurfa að sætta sig við tap fyrir Valsmönnum í kvöld.

Valsmenn jöfnuðu metin í rimmunni við Hauka um Íslandsmeistaratitlinn með sigri á heimavelli sínum, 32-30. Framlengja þurfti leikinn en Haukar hefðu getað tryggt sér titilinn með sigri í kvöld.

„Þetta var bara stöngin inn hjá þeim og stöngin út hjá okkur. Svona er það oft í framlengingum," sagði Sigurbergur sem átti flottan leik fyrir Hauka í kvöld og skoraði ellefu mörk.

„En ég var ánægður með okkur. Við börðumst og sýndum mikinn viljastyrk. En svona fór þetta bara. Nú er oddaleikurinn á laugardaginn og við ætlum okkur auðvitað að vinna hann."

„Ég fann mig ágætlega þó svo að maður sé vissulega að fara að þreytast. En það var rosalega gaman að sjá alla þessa áhorfendur í kvöld og við mætum allir óþreyttir í oddaleikinn á laugardaginn."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×